Umsóknir í Tónskólann fyrir næsta skólaár
Meira
Kjörskrá liggur frammi til kynningar á skrifstofu Strandabyggðar á opnunartíma milli kl. 10 og 14 að Hafnarbraut 25 fram að kjördegi. Einnig getur fólk farið inn á slóðina http://www.kosning.is til að kynna sér hvar það er skráð.
Kjörfundur vegna kosninga til sveitarstjórnar
Ein kjördeild verður í Strandabyggð og er kjörstaður í Hnyðju, Höfðagötu 3 Hólmavík. Kjörfundur hefst kl. 09:00 laugardaginn 14. maí 2022 en kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 -17:00. Sbr. 1. mgr. 80 gr. laga nr. 112/2021 um kosningar.
Talning hefst í Hnyðju að loknum kjörfundi kl. 18.30
Kosning utan kjörstaðar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 25.apríl og er staðsett í húsnæði dreifnámsins á efri hæð Sparisjóðs Strandamanna Hafnarbraut 19. Opið er í dag föstudaginn 13. maí til kl. 15 og á morgun kjördag frá kl.14.00 til 17.00. Kjósendur eru beðnir um að hafa með sér skilríki til auðkenningar sjá neðst á auglýsingunni:
...Árleg hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi er í fullum gangi þessa dagana. Markmið söfnunarinnar er að börn og ungmenni í félagslega og fjárhagslega erfiðri stöðu eignist reiðhjól. Þannig fá þau tækifæri til að eflast félagslega auk þess sem lýðheilsuleg sjónarmið eru að baki sem efla bæði líkamlegt og andlegt heilsufar. Börnin geta þannig með auknum hætti verið þátttakendur í samfélagi annarra barna. Almenningur er hvattur til að gefa reiðhjól til söfnunarinnar og fara með þau á móttökustöðvar Sorpu á höfuðborgarsvæðinu og þar sjá sjálfboðaliðar um viðgerðir á hjólunum áður en þeim er úthlutað til barna og ungmanna sem að öðrum kosti gefst ekki kostur á að eignast hjól. Hjólasöfnunin stendur yfir frá 1. mars og verður hjólunum úthlutað fram til byrjun maímánaðar.
Umsóknir um hjól úr söfnuninni
Þeir sem hafa áhuga og þörf fyrir að sækja um að fá hjól úr söfnuninni er bent á að hafa samband við félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps þar sem viðkomandi fær aðstoð við að senda inn umsókn. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2022.
Hægt er að hafa samband við Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, í netfang felagsmalastjori@strandabyggd.is og í síma 451-3510 eða Hjördísi Ingu Hjörleifsdóttur, starfsmann félagsþjónustu, í netfang hjordis@strandabyggd.is til að fá aðstoð með umsóknir.
Nánari upplýsingar
Hjólasöfnun Barnaheilla | Barnaheill