Gegn einelti
Við þökkum kærlega fyrir gjöfina og óskum þeim félögum góðs gengis í framhaldinu. EInnig hvetjum við alla til að gefa þessu framtaki gaum og hugleiða hvernig við í sameiningu vinnum gegn einelti.
Takk fyrir komuna Karl og Grétar!
Strandabyggð auglýsir eftir tilboðum í smíði réttar í Landi Hrófbergs, við gamla afleggjarann yfir Staðará, sunnan megin.
Stærð og umfang réttar: Heildar flatarmál réttarinnar er 525,6 m2. Stærð og umfang réttar er eftirfarandi:
Skrúfur: Notast skal við ryðfríar eða teflonhúðaðar skrúfur. Bora skal fyrir öllum skrúfum, til að forðast sprungur í viðnum
Frágangur og umhverfi: Verktaki skal skila svæðinu hreinu af timburafgöngum og hafa jafnað jarðveg og umhverfi eins og þurfa þykir
Verklok: Verktaki skal skila réttinni fullbúinni og tilbúinni fyrir notkun, 10. september 2022
Dagsektir: Dagsektir skulu reiknast 1% af kostnaðaráætlun verksins
Tilboðsfrestur: Tilboðum skal skila til sveitarstjóra Strandabyggðar, fyrir kl 12:00, mánudaginn 18. júlí 2022, á thorgeir@strandabyggd.is
Allar nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri, Þorgeir Pálsson, í síma 899-0020.
Sýslumaður, Jónas Guðmundsson, stefnir á viðveru á Hólmavík fimmtudaginn 7. júlí nk. og að vera til viðtals á skrifstofunni þar þann dag milli kl. 10:00 og 12:00 og 13:00 og 14:00.
Beiðnir um viðtal óskast sendar í netfangið jg@syslumenn.is eða í síma embættisins 458 2400.
Kæru íbúar Strandabyggðar,
Nú er um mánuður síðan ný sveitarstjórn tók við og hefur þessi mánuður verið hlaðinn verkefnum, fundum og samskiptum af ýmsu tagi. Þrír sveitarstjórnarfundir hafa verið haldnir frá 31. maí og er það vissulega mikið og ekki algengt, en svona þróast málin stundum.
Af þeim verkefnum sem ný sveitarstjórn hefur ýtt af stað og unnið í, má nefna m.a.:
Mjög margt annað mætti telja upp hér, eins og t.d. að talsverð vinna hefur farið í nefndarfundi, fundi með samstarfsaðilum, tilkynningar um breytingar í stjórnum og nefndum, Fjórðungsþing ofl. ofl.
Upptökur af sveitarstjórnfundum
Í þeirri viðleitni að efla gagnsæi í stjórnsýslu Strandabyggðar, hafa síðustu tveir sveitarstjórnarfundir verið teknir upp og verður það gert framvegis. Hugsunin er að hver sem er geti tengst fundunum og fylgst með umræðunni. Því miður urðu tæknilegir hnökrar á upptöku síðasta fundar, þannig að fólk komst ekki inn á fundinn fyrr en því var „hleypt inn handvirkt“. Þetta átti ekki að vera svona og ljóst að stillingar brugðust. Við biðjumst afsökunar á þessu og munum kappkosta að þetta endurtaki sig ekki. Sú leið var svo farin, til að gera upptökurnar aðgengilegar, að vista þær á Youtube svæði sveitarfélagsins, sem hægt verður að nálgast af heimasíðu Strandabyggðar. Hér er tenging á þessa Youtube síðu og fundina tvo sem þar eru, en í framtíðinni verður sem sagt hnappur á heimasíðunni sem vísar á upptökurnar.
Kæru íbúar,
Eins og hér hefur komið fram, eru mörg verkefni þegar komin af stað og önnur í undirbúningi. Það er ekki eftir neinu að bíða, tækifæri Strandabyggðar eru til staðar. Við þurfum bara að sækja þau!
Kveðja
Þorgeir Pálsson
Oddviti