A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Kjörskrá og kjörfundur vegna alþingiskosninga

Salbjörg Engilbertsdóttir | 21. október 2016

Kjörskrá liggur frammi til kynningar í afgreiðslu Strandabyggðar í Hnyðju Höfðagötu 3 Hólmavík,fram að kjördegi en einnig getur fólk farið inn á slóðina http://www.kosning.is  til að kynna sér hvar það er skráð.


 


Kjörfundur vegna kosninga til alþingis.


Ein kjördeild verður í Strandabyggð og er kjörstaður í  Hnyðju, Höfðagötu 3 Hólmavík.    


Kjörfundur hefst kl. 09:00  laugardaginn 29. október 2016 en kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 -17:00 . Sbr. 1. mgr. 89 gr. laga nr. 24/2000  um kosningar til Alþingis.

...
Meira

Laust starf í Íþróttamiðstöð Strandabyggðar

Salbjörg Engilbertsdóttir | 19. október 2016
Starfsmann vantar í Íþróttamiðstöðina á Hólmavík.  Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf sem felst meðal annars í afgreiðslu, baðvörslu, sundlaugarvörslu, þrifum, umsjón með tjaldstæði og öðrum tilfallandi verkefnum. Um er að ræða framtíðar starf....
Meira

Laust starf á Leikskólanum Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 19. október 2016
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 60% starf. Vinnutíminn er 12:00-16:00 fjóra daga  vikunnar og 8:00 – 16:00 á miðvikudögum. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst....
Meira

Góð gjöf frá Landsbanka Íslands

Salbjörg Engilbertsdóttir | 18. október 2016

Landsbankinn hefur fært nokkrum leikskólum og skólum að gjöf notaðan en nýlegan tölvubúnað með innbyggðri myndavél sem notaður verður við talþjálfun fyrir börn og fullorðna í gegnum fjarbúnað. Leikskólar á sjö stöðum, einn grunnskóli og eitt hjúkrunarheimili fá búnað til þessara nota.

Verkefnið er unnið í samstarfi við ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækið Tröppu en talmeinafræðingar á þeirra vegum hafa veitt rúmlega 100 börnum talþjálfun.


Fjórir leikskólar og einn grunnskóli á Vestfjörðum fá búnað og er leikskólinn Lækjarbrekka einn af þeim.

Við færum Landsbanka Íslands okkar bestu þakkir fyrir höfðinglega gjöf og mun hún koma að góðum notum við þjálfun barna í Strandabyggð en Trappa hefur sinnt fjarþjálfun hér undanfarið.



Húsnæði til leigu

| 14. október 2016

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir íbúðina að Austurtúni 8 lausa til útleigu frá næstu mánaðamótum. Um er að ræða vel skipulagða 4 herbergja íbúð í raðhúsi á tveimur hæðum alls 117,5 m2. Húsnæðið er jafnframt auglýst til sölu og er það stefna sveitarfélagsins að selja húsnæðið, sjá söluauglýsingu hér.

...
Meira
Eldri færslur

Facebook

Vefumsjón