Frekari Útskýring á símanúmerum
FORSÍÐA SÍMANÚMER OG OPNUNARTÍMAR STARFSFÓLK VERÐSKRÁ LAUS STÖRF POLSKI ENGLISH
Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ
Forsíða
Kl. 11:44, 31.12.2009
Sólborg á Flateyri lokað á næsta ári - þjónustan tryggð með öðrum hætti

Hjúkrunardeildinni á Sólborg á Flateyri verður lokað á árinu 2010 og þörfinni fyrir hjúkrunarrými þar mætt með öðrum hætti.

Ástæðan er að Heilbrigðisstofnun Vestfjarða þarf, eins og aðrar heilbrigðisstofnanir landsins að draga saman í rekstrinum. Af þessum sökum lækka framlög til hjúkrunarrýma hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða um 28.8 milljónir á næsta ári. Þeirri lækkun verður ekki mætt nema með samdrætti í starfsemi þar sem megnið af útgjöldum stofnunarinnar eru laun.


Á Flateyri hefur til margra ára verið rekin lítil hjúkrunardeild Sólborg í afar óhentugu og gömlu húsnæði. Deildin er á annarri hæð í húsi án lyftu og þrengsli eru mikil. Lítil eftirspurn hefur verið eftir plássum þar og er nú svo komið að lengst af hafa verið þar 2 - 3 heimilismenn sem þýðir að deildin hefur verið mjög vannýtt. Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að hjúkrunardeildinni á Sólborg verði lokað á árinu 2010.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða mun tryggja að íbúarnir fái örugga vistun þegar heimilinu verður lokað. Haft verður samráð við aðstandendur og íbúana á nýju ári. Litið verður til þeirra starfsmanna sem nú hefur verið sagt upp á Sólborg verði þörf á nýráðningum vegna starfsmannaveltu hjá stofnuninni á árinu 2010.



// Þröstur Óskarsson
 Læknavakt 863-8000   Neyðarlínan 112 (sjúkrabíll, lögregla, slökkvilið)
FYRST OG FREMST
HEILSUGÆSLA
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
STJÓRNSKIPULAG
STOÐDEILDIR
ÖNNUR ÞJÓNUSTA
SAGA HSÍ
VINNUSTUND
ISLAND.IS
FRÆÐSLA
PÓLSK-ÍSLENSK ORÐABÓK
NÝBURAR
YTRI TENGLAR
OPINBER STJÓRNSÝSLA
ÍSAFJÖRÐUR
SAMTÖK OG FRÓÐLEIKUR
FAGFÉLÖG
LÝÐHEILSUSTÖÐ
HEILBRIGÐISSTOFNANIR
MENNTASTOFNANIR
ERLENDIR TENGLAR
PÓSTLISTI
Netfang:
Aðgerð:
FYRIRSPURN
Senda fyrirspurn á:
Nafn:
Netfang:
Titill:
Fyrirspurn:


Við ábyrgjumst ekki að svar berist innan neinna ákveðinna tímamarka