Kl. 13:36, 27.02.2009 Heilbrigðisráðherra fundar á Ísafirði
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra fundaði í morgun með stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og sveitarstjórnendum á svæðinu. Að því loknu hélt hann fund með starfsfólki stofnunarinnar í matsal hennar við Torfnes á Ísafirði.
Börn úr Tónlistarskólanum á Ísafirði heimsóttu Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði nú fyrir stundu. Barnakórinn söng nokkur lög og svo léku píanónemendur tvíhent í lokin. Þetta er ekki fyrsta heimsókn tónlistarnema og vilja starfsmenn og gestir stofnunarinnar þakka krökkunum kærlega fyrir glaðninginn enda eru þessar heimsóknir hrein upplyfting í skammdeginu. Krakkarnir þáðu síðan vöfflur og ávaxtasafa að flutningi loknum.
// Svavar Þór Guðmundsson
Kl. 13:07, 13.02.2009 Aðalstræti 37 á Þingeyri er til sölu
Ríkiskaup hafa nú til sölu fasteignina Aðalstræti 37 á Þingeyri. Húsið var áður nýtt sem læknisbústaður en hefur undanfarin ár verið leigt út.