 |
 |
FRÉTTASÍÐA |
 |
 |
 |
Kl. 11:44, 31.12.2009 Sólborg á Flateyri lokað á næsta ári - þjónustan tryggð með öðrum hætti
Hjúkrunardeildinni á Sólborg á Flateyri verður lokað á árinu 2010 og þörfinni fyrir hjúkrunarrými þar mætt með öðrum hætti.
Ástæðan er að Heilbrigðisstofnun Vestfjarða þarf, eins og aðrar heilbrigðisstofnanir landsins að draga saman í rekstrinum. Af þessum sökum lækka framlög til hjúkrunarrýma hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða um 28.8 milljónir á næsta ári. Þeirri lækkun verður ekki mætt nema með samdrætti í starfsemi þar sem megnið af útgjöldum stofnunarinnar eru laun.
Lesa meira
// Þröstur Óskarsson
|
|
Kl. 08:38, 31.12.2009 Gáfu 5 milljónir til kaupa á sneiðmyndatæki
Fyrirtækið Klofningur ehf., hefur veitt Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði (Úlfssjóði) fimm milljóna króna styrk til kaupa á nýju sneiðmyndatæki.
Lesa meira
// Þröstur Óskarsson
|
|
Kl. 09:35, 11.12.2009 Starfsfélagar kveðja
Þann 10. desember kvaddi starfsfólk stofnunarinnar fjórar heiðurskonur en samanlagður starfsaldur þeirra við stofnunina og forvera hennar er samtals 153 ár!
Lesa meira
// Svavar Þór Guðmundsson
|
|
Kl. 08:22, 12.11.2009 (Ný) fæðingadeild fær gjöf
Nokkrar ungar konur, ásamt börnum sínum, litu við á fæðingadeild sjúkrahússins á dögunum. Tilgangurinn var sá að færa deildinni gjöf sem er fyrst og fremst hugsuð sem þakklætisvottur fyrir veitta aðstoð og stórkostlega þjónustu.
Nú er fæðingadeildin að gangast undir algera andlitslyftingu sem búast má við að ljúki á næstu dögum. Leist hópnum vel á breytingarnar og líklegt má því telja að þær eigi eftir að nýta sér þjónustu deildarinnar aftur enda allar á hápunkti barneignaaldursins.
Á myndinni má sjá þennan myndarlega hóp ásamt Brynju Pálu Helgadóttur og Halldóru Karlsdóttur ljósmæðrum.
// Svavar Þór Guðmundsson
|
|
Kl. 16:06, 26.10.2009 Rannveig Björnsdóttir ráðin deildarstjóri legudeilda
Rannveig Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin sem deildarstjóri legudeilda hjá stofnuninni á Ísafirði.
Lesa meira
// Þröstur Óskarsson
|
| 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28
|
 |
 |
| Læknavakt 863-8000 Neyðarlínan 112 (sjúkrabíll, lögregla, slökkvilið) |
 |
|
|
 |
 |
 |
 |
FYRST OG FREMST |
|
 |
|
|
 |
 |
YTRI TENGLAR |
|
 |
|
|
 |
 |
PÓSTLISTI |
|
 |
|
|
 |
 |
FYRIRSPURN |
|
 |
|
Við ábyrgjumst ekki að svar berist innan neinna ákveðinna tímamarka
|
|
 |