Kl. 14:17, 24.09.2004 Enn taka nýir læknar til starfa!
Hulda María Einarsdóttir læknir stimplaði sig inn í byrjun mánaðarins. Hún er Vestfirðingum að góðu kunn enda er þetta ekki í fyrsta sinn sem hún vinnur við Heilbrigðisstofnunina Ísafjarðarbæ.
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði var nú í dag afhent gjöf frá vinum Guðlaugs Elíss Guðjónssonar heitins. Er um tvö sjónvarpstæki að ræða sem ætluð eru til notkunar á bráðadeild sjúkrahússins.