Kl. 14:38, 06.01.2005 Litið um öxl að loknu áhlaupi.
Mjög villandi umræður hafa verið um starfsemi Fjórðungssjúkrahússins og heilsugæslustöðvarinnar á Ísafirði að undanförnu. Ýmsir aðilar hafa farið hamförum í málflutningi sínum en þeir eiga það flestir sameiginlegt að hafa ekki leitað eftir upplýsingum og skýringum hjá stofnuninni um þau mál sem fjallað hefur verið um.