Frekari Útskýring á símanúmerum
FORSÍÐA SÍMANÚMER OG OPNUNARTÍMAR STARFSFÓLK VERÐSKRÁ LAUS STÖRF POLSKI ENGLISH
Heilbrigðisstofnunin Ísafjarðarbæ
FRÉTTASÍÐA
Kl. 16:26, 04.05.2007
Samið um geðheilbrigðisþjónustu á Sauðárkróki og Ísafirði

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í dag samninga um geðheilbrigðisþjónustu við börn og ungmenni í umdæmum Heilbrigðisstofnananna Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og á Sauðákróki.

Lesa meira

// Þröstur Óskarsson

Kl. 15:57, 20.04.2007
GJÖF TIL FÆÐINGADEILDAR

Hilmar Þorbjörnsson, nýbakaður faðir, var ekki ýkja hrifinn af gömlum og lúnum sjónvörpum fæðingadeildarinnar. Hann tók sig til og safnaði fyrir 2 nýjum flatskjám og afhenti deildinni þ. 20. apríl s.l., 6 dögum eftir fæðingu dóttur hans. Þetta er vel af sér vikið!

Lesa meira

// Hörður Högnason

Kl. 14:42, 17.04.2007
Sjálfstæðimenn létu sig ekki vanta

Varla voru frambjóðendur Vinstri grænna farnir úr húsi en aðra gesti bar að garði en þar fóru Sturla Böðvarsson samgönguráðherra ásamt Birnu Lárusdóttur forseta bæjarstjórnar og frambjóðanda til alþingiskosninga, Inga Þórs Ágústssonar bæjarfulltrúa og Kristrúnar Birgisdóttur, aðstoðarmanns ráðherra. Fóru þau hring um húsið og settust síðan að snæðingi með starfsmönnum. Á myndinni er Sturla í góðum félagsskap en ólíklegt verður að teljast að samið hafi verið um mörg jarðgöng í þetta sinnið.

Lesa meira

// Svavar Þór Guðmundsson

Kl. 14:27, 17.04.2007
Vinstri grænir í heimsókn

tveir frambjóðenda Vinstri grænna, þau Jón Bjarnason og Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir litu við á sjúkrahúsinu í morgun og heilsuðu upp á starfsfólk og sjúklinga. Eflaust var margt skrafað enda stutt í atið í kringum alþingiskosningarnar í maí. Á myndinni má sjá þau rabba við fólk við æfingar á endurhæfingunni.

Lesa meira

// Svavar Þór Guðmundsson

Kl. 16:03, 26.03.2007
Söngur og gleði

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð gladdi sjúklinga og starfsfólk með heimsókn sinni á sunnudaginn kl. 11. Sungu þau af list fyrir mannskapinn og vakti það gríðarmikla lukku enda dagskráin sérstaklega skemmtileg auk þess sem krakkarnir eru fyrirmynd jafnaldra sinna. Þakkar starfsfólk og sjúklingar skemmtunina sem var einstök.

Lesa meira

// Svavar Þór Guðmundsson

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28
 Læknavakt 863-8000   Neyðarlínan 112 (sjúkrabíll, lögregla, slökkvilið)
FYRST OG FREMST
HEILSUGÆSLA
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
STJÓRNSKIPULAG
STOÐDEILDIR
ÖNNUR ÞJÓNUSTA
SAGA HSÍ
VINNUSTUND
ISLAND.IS
FRÆÐSLA
PÓLSK-ÍSLENSK ORÐABÓK
NÝBURAR
YTRI TENGLAR
SAMTÖK OG FRÓÐLEIKUR
OPINBER STJÓRNSÝSLA
HEILBRIGÐISSTOFNANIR
FAGFÉLÖG
MENNTASTOFNANIR
LÝÐHEILSUSTÖÐ
ERLENDIR TENGLAR
ÍSAFJÖRÐUR
PÓSTLISTI
Netfang:
Aðgerð:
FYRIRSPURN
Senda fyrirspurn á:
Nafn:
Netfang:
Titill:
Fyrirspurn:


Við ábyrgjumst ekki að svar berist innan neinna ákveðinna tímamarka